Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Haustráðstefnavrmynd

Almennar fréttir - 20.11.2019

Stjórnaðu streitunni! Haustráðstefna VR um forvarnir gegn kulnun

VR býður á ráðstefnu um forvarnir gegn kulnun, fimmtudaginn 28. nóvember 2019, kl. 8.30 -12.00 á Grand Hótel Reykjavík. Markmið ráðstefnunnar er að fá saman fræðimenn á fjölbreyttum sviðum til að veita góð ráð um hvernig hægt er að viðhalda góðri heilsu og fyrirbyggja kulnun en einnig hvernig hægt er að snúa við óheillavænlegri þróun með lífsstílsbreytingum. VR var leiðandi í íslensku samfélagi við að vekja athygli á kulnun og hvaða áhrif hún getur haft á einstaklinga. Nú vill VR taka þátt í því að vekja athygli á forvörnum gegn kulnun og hvað fólk getur gert til að stuðla að heilbrigði og vellíðan í amstri dagsins. Fyrirlesarar verða:

  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs - Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og framkvæmdarstjóri Forvarna.
  • Svefn og svefnvenjur - Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og stofnandi Betri svefns.
  • Hreyfing og áhugamál - Ingibjörg Loftsdóttir, sjúkraþjálfari og sviðsstjóri hjá VIRK.
  • Næring og mataræði - Erla Gerður Sveinsdóttir, yfirlæknir hjá Heilsuborg og lýðheilsufræðingur.

Í lokin verður svo boðið upp á pallborð með öllum fyrirlesurum þar sem hægt verður að spyrja spurninga.

Fundarstjóri verður Sölvi Tryggvason, sjónvarpsmaður og rithöfundur en hann hefur talað opinskátt um sína reynslu af alvarlegri kulnun ásamt því hvernig hann hefur unnið sig aftur til heilsu með fjölbreyttum aðferðum.

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík, 28. nóvember. Morgunmatur verður í boði frá kl. 08:00 og ráðstefnan hefst kl. 08:30.

Smelltu hér til að skrá þig

Þá er einnig hægt að skrá sig á streymi fyrir þá sem eiga ekki heimangengt. Smelltu hér til að skrá þig á streymi.

Sjá einnig viðburðinn á Facebook hér.