Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_logo-2.jpg

Almennar fréttir - 21.06.2019

Stjórnarmaður segir sig úr stjórn VR

Ólafur Reimar Gunnarsson, fyrrverandi stjórnarmaður í VR og fráfarandi stjórnarformaður í Lífeyrissjóði verzlunarmanna, hefur sagt af sér sem stjórnarmaður í félaginu.

Tilefnið er afturköllun umboðs stjórnarmanna í LV sem fulltrúaráð VR samþykkti á fundi sínum gærkvöld. Ólafur Reimar las yfirlýsingu á fundinum en yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér.

VR þakkar Ólafi Reimari fyrir góð störf og gott samstarf í gegnum árin.