Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_kvennafridagurinn_2016-6.jpg

Almennar fréttir - 19.06.2017

Til hamingju með daginn!

19. júní er kvenréttindadagurinn en á þessum degi árið 1915 fengu íslenskar konur – 40 ára og eldri - kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Kosningaréttur kvenna var stórt skref í átt til jafnréttis karla og kvenna – en baráttunni er ekki lokið. Enn er munur á stöðu kynjanna á vinnumarkaði, ekki síst þegar kemur að launum. VR hefur barist fyrir jafnrétti karla og kvenna á vinnumarkaði undanfarin ár og áratugi og mun halda baráttunni áfram.

Við óskum konum í félaginu og um allt land til hamingju með daginn. Áfram konur !

Sjá nánari umfjöllun VR um jafnréttismál