Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
tjaldsvæði-2

Almennar fréttir - 12.09.2019

Tjaldsvæði VR lokar 15. september

Nú eru síðustu forvöð að njóta þess að gista á glæsilegu tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi þetta árið því svæðinu verður lokað frá og með sunnudeginum 15. september nk.

Við opnum aftur þegar vorar á ný en minnum á að félagsmenn VR hafa aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið allt árið um kring, sjá nánar á orlofsvef VR.

Við þökkum félagsmönnum VR fyrir frábæra umgengni um svæðið í sumar.