Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
tjaldsvaedi-1

Almennar fréttir - 07.06.2017

Tjaldsvæði VR opnar um helgina!

Tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi opnar föstudaginn 9. júní.

Á tjaldsvæðinu er mjög góð aðstaða fyrir tjöld, húsbíla og fellihýsi. Þar er einnig þjónustuhús með grillaðstöðu og vöskum, salernisaðstöðu, sturtum og þvottavél til afnota fyrir tjaldgesti. Á svæðinu er umsjónaraðili sem annast eftirlit.

Svæðið er allt hið glæsilegasta og mjög fjölskylduvænt. Leikaðstaða er inni á sjálfu svæðinu en auk þess er sérstakt leiksvæði í tengslum við orlofshúsabyggð VR í Miðhúsum.

Tjaldsvæðið er aðeins ætlað VR félögum og fjölskyldum þeirra en félagsmenn geta boðið gesti/gestum til að dvelja með sér á tjaldsvæðinu, þó aldrei meira en sem samsvarar einu tjaldstæði. Heimilt er að hafa gæludýr á tjaldsvæðinu. Hámarksdvöl á tjaldsvæðinu er tvær vikur.

VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 3.000 kr. pr. nótt en þó að hámarki 18.000 kr. fyrir hvert orlofstímabil. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun.

Sjá nánar um tjaldsvæðið á Orlofsvef VR.