Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvæði.JPG

Almennar fréttir - 23.04.2019

Útilegukortið er komið í sölu

Fullgildum félagsmönnum VR stendur til boða að kaupa útilegukortið fyrir sumarið 2019. Kortið veitir tveimur fullorðnum og allt að fjórum börnum upp að 16 ára aldri gistingu á 41 tjaldsvæði víðsvegar um landið. Kortið kostar 12.900 krónur og getur hver fullgildur félagsmaður keypt eitt kort.

Kortið er hægt að kaupa á orlofsvef VR og á skrifstofum VR.