Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
veidikortir_emil.jpg

Almennar fréttir - 14.03.2018

Veiðikortið er komið!

Fullgildum félagsmönnum VR stendur til boða að kaupa Veiðikortið fyrir sumarið 2018. Veiðikortið veitir nær ótakmarkaðan aðgang að fjölda vatnasvæða vítt og breitt um landið. Handbók fylgir hverju korti þar sem má finna leiðbeiningar og reglur. Kortið kostar kr. 4.800 og getur hver fullgildur félagsmaður keypt eitt kort.

Hægt er að kaupa Veiðikortið á Mínum síðum og á skrifstofum VR.