Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Logo 2 (1)

Almennar fréttir - 31.01.2020

Vilt þú starfa í forystu VR?

Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn VR eftir einstaklingsframboðum í stjórn félagsins og listaframboiðum í trúnaðarráð.

Framboðsfrestur er til kl. 12.00 á hádegi, mánudaginn 10. febrúar 2020.

Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð vegna sjö sæta í aðalstjórn til tveggja ára, tveggja sæta í aðalstjórn til eins árs og þriggja sæta varamanna til eins árs. Skrifleg meðmæli 15 félagsmanna VR þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar.
Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista Uppstillinganefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 360 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.

Frambjóðendum er bent á www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.

Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

31. janúar 2020
Kjörstjórn