Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Mynd af stólum2.jpg

Almennar fréttir - 01.02.2018

Vilt þú starfa í forystu VR?

Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð. Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi, föstudaginn 9. febrúar 2018.

Um er að ræða annars vegar sjö sæti í stjórn og þrjú til vara. Skrifleg meðmæli 15 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar. Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð.

Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillingarnefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 328 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.

Hér getur þú nálgast eyðublöð vegna framboða og ítarlegri upplýsingar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.

Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

1. febrúar 2018 
Kjörstjórn VR