Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
myndin-1200x628.png

Almennar fréttir - 02.11.2017

VR óskar eftir orlofshúsum til leigu

VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.

Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2017. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:

  • Lýsing á eign og því sem henni fylgir
  • Ástand íbúðar og staðsetning
  • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
  • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni