Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
1.mai-fanar

Almennar fréttir - 19.06.2018

Skrifstofur VR loka kl. 14.30 á föstudag

Vegna leiks Íslands gegn Nígeríu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu munu skrifstofur og þjónustuver VR loka kl. 14.30 á föstudaginn næstkomandi, þann 22. júní 2018. Á þetta við um skrifstofur VR á öllum félagssvæðum, þ.e. í Reykjavík, á Akranesi, Egilsstöðum, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 

VR skorar á önnur fyrirtæki að gera slíkt hið sama.