Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd104.JPG (1)

Almennar fréttir - 02.02.2017

Hefur þú áhuga á að starfa í forystu VR?

Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.

  • Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, sjö sæti í stjórn og þrjú til vara. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns og 15 vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar.
  • Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.

Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 9. febrúar 2017.

Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

Frambjóðendum er bent á vef VR þar sem eyðublöð vegna framboða eru aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar um framboð til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.

2. febrúar 2017
Kjörstjórn VR