Vr Fanar 1

Almennar fréttir - 14.03.2024

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning VR við FA

Kjörstjórn VR auglýsir hér með leynilega, rafræna atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning VR við Félag atvinnurekenda.

Atkvæðagreiðslan hefst kl. 10:00 mánudaginn 18. mars 2024 og lýkur kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 21. mars 2024. Kosningarétt hefur allt félagsfólk VR sem starfar samkvæmt þessum samningi.

Kosning fer fram á vr.is. Innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Félagsfólk sem ekki getur kosið en telur sig eiga rétt á að taka þátt, vinsamlega sendið erindi til Kjörstjórnar VR, kjorstjorn@vr.is eða í síma 510 1700. Félagsfólk sem þarfnast aðstoðar við að greiða atkvæði rafrænt getur fengið aðstoð á skrifstofum VR á opnunartíma.

14. mars 2024
Kjörstjórn VR