Vr Fanar Kringlan 2

Almennar fréttir - 25.03.2024

Greitt inn í VR varasjóð

VR varasjóður hefur nú verið uppfærður eftir samþykkt á aðalfundi VR þann 21. mars sl. Á Mínum síðum getur þú séð hver staða þín í sjóðnum er. Athugið að endurgreiðsla hvers VR félaga fer eftir réttindainneign hans.

Á aðalfundi VR, sem haldinn var 21 mars sl., var samþykkt að framlag í VR varasjóð verði samtals 1.050 m.kr. fyrir árið 2023. Varasjóðinn má nýta í ýmis æfingagjöld eins og í líkamsrækt, sund og golfklúbba og við kaup á hjálpartækjum tengdum líkamsrækt eins og hlaupaskóm, golfkylfum og fleiru. Þá er hægt að nýta sjóðinn í ýmsa læknistengda þjónustu eins og tannlækni, sálfræðikostnað, laseraðgerðir og fleira.

Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun.

Þrjár undantekningar eru á staðgreiðsluskyldum greiðslum:

  • Líkamsrækt og endurhæfing sem er sambærileg og önnur íþróttaiðkun að hámarki kr. 77.000 á ári (m.v. árið 2024)
  • Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 72.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
  • Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.

Nánari upplýsingar um varasjóðinn má sjá hér.

Stöðu og umsóknir í VR varasjóð má finna á Mínum síðum.