Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvæði.JPG

Almennar fréttir - 01.09.2017

Tjaldsvæði VR lokar 4. september

Nú eru síðustu forvöð að njóta þess að gista á glæsilegu tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi þetta árið því svæðinu verður lokað frá og með mánudeginum 4. september nk. Við opnum aftur þegar vorar á ný en minnum á að félagsmenn VR hafa aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið allt árið um kring, sjá nánar á orlofsvef VR.