Vr Fanar 1

Almennar fréttir - 06.05.2024

Skrifstofur VR loka kl. 12:00 á hádegi í dag

Skrifstofur VR verða lokaðar frá hádegi í dag, mánudaginn 6. maí 2024 vegna fræðsludags starfsfólks. Þetta á við allar skrifstofur félagsins, þ.e. í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Reykjanesbæ, á Selfossi, Egilsstöðum og Akranesi.

Við minnum á vef félagsins vr.is en þar má finna allar helstu upplýsingar um þjónustu VR.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.