Vefspjall Mán-fim: 8:30-15:30 Fös: 8:30-14:30
Sími 510 1700
Hafðu samband
Opnunartímar skrifstofu
Almennar fréttir
07.02.2024
Framboðsfrestur til stjórnar og trúnaðarráðs rann út á hádegi mánudaginn 5. febrúar 2024
05.02.2024
Vetrarúthlutun orlofshúsa hefst kl. 12:00 á hádegi í dag, mánudaginn 5. febrúar 2024. Sótt er um orlofshús í gegnum orlofsvef VR á Mínum síðum
Framboðsfrestur til stjórnar og trúnaðarráðs rann út á hádegi í dag, mánudaginn 5. febrúar 2024. Kjörstjórn fundar á morgun, þriðjudag, og úrskurðar um lögmæti framboða.
02.02.2024
VR hefur boðið félagsfólki sínu upp á fróðlega fyrirlestra í fjölda ára. Síðustu ár hafa hádegisfyrirlestrarnir verið á rafrænu formi. Mikil ánægja er með það fyrirkomulag því það kemur betur til móts við félagsfólk utan höfuðborgarsvæðisins, auðveldar aðgengi allra og eykur sveigjanleika fyrir áhorf því mögulegt er að hafa fyrirlestrana lengur opna og fólk getur því horft þegar því hentar.
Við minnum á að framboðsfrestur vegna kosninga í stjórn VR og listakosninga í trúnaðarráð rennur út kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 5. febrúar 2024.
29.01.2024
VR beinir þeim tilmælum til félagsfólks að fara ekki af stað í orlofshús á vegum félagsins á illa útbúnum ökutækjum. Mjög snjóþungt er á öllu landinu og vetrarfærð í orlofsbyggðum VR. Félagið hvetur félagsfólk til að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð.
24.01.2024
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Komið er að krossgötum í viðræðum Breiðfylkingar stærstu landssambanda og stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins. Eftir fjölda funda er komið í ljós að SA fallast ekki á hófsama nálgun Breiðfylkingarinnar.
22.01.2024
Félagsfólk vinsamlega athugið að vegna bilunar í orlofskerfi hefur verið ákveðið að fresta vetrarúthlutun orlofshúsa. Úthlutun fer fram mánudaginn 5. febrúar næstkomandi kl. 12:00.
17.01.2024
Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði hóf viðræður við Samtök atvinnulífsins þann 28. desember.
16.01.2024
Opnað hefur verið fyrir umsóknir orlofshúsa fyrir sumarið 2024 og verður opið fyrir umsóknir til 29. febrúar.
11.01.2024
Uppstillingarnefnd VR óskar eftir frambjóðendum til trúnaðarráðs VR. Áhugasöm geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillingarnefnd@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 22. janúar næstkomandi.