Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Husid 2020 Prent

Almennar fréttir - 17.03.2023

Aðalfundur VR

Aðalfundur VR verður haldinn miðvikudaginn 29. mars 2023 kl. 19:30 á Grand hótel Reykjavík.

Fundurinn verður bæði stað- og fjarfundur. VR félagar verða að skrá sig fyrirfram fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi. Túlkun á ensku verður einungis í boði í fjarfundi.

Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, lagabreytingar, reglugerðarbreytingar og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð.

Skráning og upplýsingar á vr.is/adalfundur