Reglur og skilmálar

Öll verð og dagsetningar eru birt með fyrirvara um breytingar og innsláttarvillur.

Ganga þarf frá greiðslu fyrir leigu orlofshúsa um leið og bókað er að vetrarlagi. Að sumarlagi er gengið frá greiðslu eftir úthlutun. Ef inneign í VR varasjóði er notuð til að greiða fyrir leiguna er hún undanþegin staðgreiðsluskyldu, að hámarki kr. 72.000 á ári (m.v. árið 2024).
Vinsamlegast kynnið ykkur umgengnisreglur áður en þið leigið ykkur orlofshús.

Nánari upplýsingar um orlofshús VR eru hjá þjónustuveri VR í síma 510 1700 eða á netfangið orlofshus@vr.is

Úthlutun orlofshúsa til félagsfólks VR er skipt í tvö tímabil, sumar og vetur.

  • Leigutími orlofshúsa og -íbúða í sumarleigu er frá 5. júní til 30. ágúst 2024.

    Sumarleiga er ein vika í senn, í Miðhúsaskógi er sumarleiga vika frá kl. 17:00 á miðvikudegi til kl. 12:00 á hádegi á miðvikudegi. Á öðrum stöðum er leigan ýmist frá fimmtudegi til fimmtudags, eða frá föstudegi til föstudags.

    Hámarksleiga er ein vika á sumri fyrir hvern félaga.

    Árið 2024 er sumarleiga orlofshúsa samkvæmt nýjum reglum sem hér segir:

    • Umsóknartímabilið er frá 15. janúar til og með 29. febrúar.
    • Allt félagsfólk sem sækir um hefur sömu möguleika á að fá úthlutað, óháð því hvenær sótt er um á umsóknartímabilinu.
    • Einungis félagsfólk sem ekki hefur fengið úthlutað orlofshúsi einhvern tímann síðustu þrjú sumur getur sótt um í sumarleigu.
    • Sótt er um orlofshús á Mínum síðum á vef VR. Hægt er að sækja um að hámarki þrjú hús og skal raða umsóknum í forgangsröð. Á meðan umsóknarferlið er opið er hægt að sjá hve margar umsóknir hafa borist um hvert hús á hverjum tíma.
    • Þegar umsóknartímabilinu er lokið, í lok febrúar, er dregið rafrænt og handahófskennt úr þeim umsóknum sem bárust.
    • Ef VR félagi fær ekki úthlutað því húsi sem hann setti sem valkost númer eitt, á hann möguleika á að fá úthlutað valkosti númer tvö eða númer þrjú. Ekki verður gefinn kostur á skráningu á biðlista hafi enginn valkostur verið laus.
    • Félagsfólk sem fær úthlutað húsi fær tilkynningu um það í tölvupóst eða sms og hefur 10 daga til að staðfesta og ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður. Ef ekki er gengið frá greiðslu innan þess tíma, fer orlofshúsið á orlofsvefinn að nýju nokkrum dögum síðar.
    • Allt félagsfólk getur sótt um laus hús eftir úthlutun, og gildir þá reglan Fyrst koma, fyrst fá.

    Hús nr. 14b í Miðhúsaskógi er sérhannað fyrir hreyfihamlaða og leggur VR áherslu á að félagsfólk með hreyfihömlun hafi forgang í það hús. Ef húsinu er ekki úthlutað allt tímabilið, fer það í frjálsa leigu eins og önnur laus hús þær vikur sem það er laust.

  • Óbreytt fyrirkomulag (Fyrst koma, fyrst fá)

    Vetrarúthlutun orlofshúsa fyrir vetur 2024/2025 hefst 5. febrúar 2024 kl. 12:00. Við úthlutun orlofshúsa hjá VR að vetri til er notast við fyrirkomulagið Fyrst koma, fyrst fá og er sótt um á Mínum síðum.

    • Hægt er að bóka að lágmarki tvær nætur í vetrarútleigu.
    • Hámarksleiga að vetri er 18 dagar.
    • Helgar eru leigðar í heilu lagi, frá föstudegi og fram á mánudag.
    • Ganga þarf frá greiðslu þegar bókað er.
  • Hámarksleiga að vetri eru 18 dagar.

    • Ef orlofshúsinu er skilað áður en +60 dagar eru í upphaf leigutöku fæst 100% leigugjaldsins endurgreitt.
    • Ef orlofshúsinu er skilað áður en 60 - 14 dagar eru í upphaf leigutöku fæst 85% leigugjaldsins endurgreitt.
    • Ef orlofshúsinu er skilað áður en 14 - 7 dagar eru í upphaf leigutöku fæst 50% leigugjaldsins endurgreitt.
    • Ef orlofshúsinu er skilað áður en 7 - 3 dagar eru í upphaf leigutöku fæst 20% leigugjaldsins endurgreitt.
    • Ef orlofshúsinu er skilað þegar minna en 3 dagar - 72 klst eru í upphaf leigutöku þarf að greiða fulla leigu fyrir húsið.
  • Heimilt er að hafa gæludýr í 20 húsum VR - sjá lista hér að neðan. Lausaganga hunda er bönnuð og er gerð krafa um að eigendur þrífi upp eftir sína hunda. Hundar mega ekki valda öðrum gestum ónæði og ró þarf að vera á svæðinu frá miðnætti til morguns. Brot á reglum getur valdið brottrekstri af svæðinu.

    Flúðir
    hús nr. 29 og 30

    Miðhúsaskógur
    hús nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 24 og 25

    Lækjarbakki
    hús nr. 21

    Húsafell
    hús nr. 9, 10 og 12

    Fljótshlíð Hellishólar
    hús nr. 16

    Akureyri – Hálönd
    Holtaland hús nr. 4 og 6
    Hrókaland hús nr. 5
    Hyrnuland 4.

  • Leigjendur sem gerast, með grófum hætti, brotlegir við ákvæði leigusamnings um þrif og umgengni geta bæði átt von á því að þurfa að greiða sekt og einnig að reiða af hendi greiðslu fyrir þrif eða viðgerð. Er slíkt metið hverju sinni. Ef um sérlega gróft brot er að ræða getur afleiðing þess einnig orðið sú að viðkomandi fái ekki að leigja orlofshús hjá félaginu um skilgreindan tíma.

    • Hafi orlofshúsið ekki verið nýtt á leigutímanum er ekki hægt að fá leigugjaldið endurgreitt eftir á.
    • Orlofshús eru ekki leigð til VR félaga yngri en 20 ára og er miðað við árið sem þeir verða 21 árs.
    • Ef inneign í VR varasjóði er notuð til að greiða fyrir leigu á orlofshúsi er hún undanþegin staðgreiðsluskyldu skatta, að því hámarki sem er í gildi hverju sinni samkvæmt skattmati hvers árs.
    • Framleiga á orlofseignum VR er með öllu óheimil. Félagi sem skráður er leigjandi ber fulla ábyrgð húsnæðisins á meðan það er í leigu á hans nafni.
    • Athugið að einungis eitt tjald/einn ferðavagn má fara í hvert stæði.
    • Hámarksleiga eru 10 nætur.
    • Aldurstakmark til að bóka tjaldstæði er 20 ár, miðað er við árið sem VR félagi verður 21 árs.
    • Ganga þarf frá greiðslu um leið og bókað er. Ekki er hægt að fá endurgreitt eftir að leigan hefur verið greidd.