Vefspjall
Hleður upp...
27. okt.
Verð: 2.500 kr. Tími: 08:30 Staðsetning: Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Auðnast Lógó

Námskeið

Námskeið fyrir félagsfólk - Tímamót og tækifæri - Starfslok

27. október kl. 8:30-15:45 (húsið opnar kl. 08:15) 
Leiðbeinendur: Sérfræðingar frá Auðnast  
Skráningargjald: 2500 kr. 


Rannsóknir hafa sýnt að ef fólk fær tækifæri til að undirbúa starfslok, eru meiri líkur á að tímamótin auki ánægju og vellíðan komandi ára.  

Á starfslokanámskeiði Auðnast er stuðst við líkanið ,,okkar daglega líf” sem samanstendur af mikilvægum þáttum sem fræðin telja vert að rýna við tímamót sem þessi. Farið verður yfir hvern þátt fyrir sig með fyrirlestrum, verkefnum og umræðum. Einnig fer hluti námskeiðsins í að ræða allt það helsta er við kemur lífeyrismálum, Tryggingastofnun og fleira hagnýtt. 
 
Að loknu námskeiði á viðkomandi að hafa:

  • Lært að skilgreina og flokka áhrifaþætti daglegs lífs  
  • Fræðst um líkamlega og andlega heilsu  
  • Lært að þekkja réttindi sín er fólk nálgast eftirlaunaaldur  
  • Fengið tækifæri til að máta sig við ný og breytt hlutverk  
  • Fengið tækifæri til að skoða félagslegu stöðu sína  
  • Fengið þjálfun í því að koma hugsunum sínum og líðan í orð

Námskeiðið verður haldið í sal VR á 9.hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Húsið opnar kl. 08:15. Boðið verður upp á léttan morgun- og hádegisverð.

Smelltu hér til að sjá dagskrá námskeiðsins.

Kvittun fyrir greiðslu verður send á skráð netfang á Mínum síðum.