Vefspjall
Hleður upp...
Opið á Mínum síðum
Viðbótarlífeyrissparnaður

Fyrirlestrar

Rafrænn fyrirlestur - Viðbótarlífeyrissparnaður

Viðbótarlífeyrissparnaður er réttur sem launafólk getur nýtt sér. Á Mínum síðum getur félagsfólk horft á myndband þar sem  Jennýr Ýr, sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, yfir helstu atriði viðbótarlífeyrissparnaðar og þann ávinning sem hann getur veitt.

Í  myndbandinu er útskýrt hvað viðbótarlífeyrissparnaður er, hvernig hægt er að hefja sparnað og hvaða valkostir standa til boða. Einnig er fjallað um helstu kosti sparnaðarins, mismunandi fjárfestingaleiðir og hvernig hægt er að nýta sparnaðinn. Tekið er dæmi um hversu háa fjárhæð einstaklingur getur safnað fram að starfslokum og hvað þarf að hafa í huga þegar skipt er um starf.

Þá er fjallað um almenna heimild til skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar vegna húsnæðis og úrræði tengd fyrstu íbúðarkaupum. Að lokum er farið yfir kostnað og þóknanir sem tengjast sparnaðinum.a

Lengd: 8 mínútur 
Fyrirlesari: Jennýr Ýr, sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna

Smelltu hér til að skrá þig inn á Mínar síður og horfa á myndbandið.