Niðurstöður úr könnun VR á Fyrirtæki ársins 2026 liggja nú fyrir. Þrjú efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki eru útnefnd Fyrirtæki ársins. Eingöngu fyrirtæki sem bjóða öllu starfsfólki sínu þátttöku í könnuninni koma til greina.
Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju og margt fleira. Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu, enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra.
Hér má sjá lista í stafrófsröð yfir Fyrirtæki ársins 2026, í hverjum stærðarflokki fyrir sig. VR óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Stór fyrirtæki
APRÓ
Garri
Travel Connect
Meðalstór fyrirtæki
Hringdu
Orkan
Syndis
Lítil fyrirtæki
Kjólar & Konfekt
Rekstrarfélag Kringlunnar
Tryggja