Vefspjall
Hleður upp...
Opið á Mínum síðum
IMG 5188

Fyrirlestrar

Rafrænn fyrirlestur - Jákvæð sálfræði – Vellíðan er færni

Getum við æft okkur í að líða vel?

Vellíðan er ekki eingöngu eitthvað sem gerist af sjálfu sér heldur er hún einnig færni sem við getum þjálfað og eflt. Með því að beina athyglinni að því jákvæða, uppbyggilega og fallega í umhverfi okkar getum við haft áhrif á eigin líðan og aukið vellíðan í daglegu lífi og starfi.

Í þessu stutta fræðslumyndbandi fjallar Perla Magnúsdóttir um grunnþætti jákvæðrar sálfræði og hvernig við getum meðvitað stuðlað að betri líðan.

Meðal þess sem fjallað verður um er:

  • Hvað einkennir fólk sem líður vel?
  • Hvaða þættir stuðla að aukinni vellíðan?
  • Hvernig getum við þjálfað okkur í að beina athyglinni að því jákvæða í daglegu lífi?

Það sem við veitum athygli vex. Með einföldum breytingum á því hvernig við hugsum og hvert við beinum athygli okkar getum við stigið skref í átt að aukinni vellíðan.

Lengd: 9 mínútur
Fyrirlesari: Perla Magnúsdóttir

Smelltu hér til að skrá þig inn á Mínar síður og horfa á myndbandið.