Samkomulag VR og SA um kjarasamninga í höfn
Almennar fréttir
08.10.2026
VR og Samtök atvinnulífsins hafa komist að samkomulagi um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið, sem var handsalað laust fyrir klukkan 16:00 í dag, felur í sér nýtt forsenduákvæði sem kveður á um heimild til að stytta gildistíma kjarasamninga, miðað við ákveðið verðbólguviðmið.