VR varasjóður er persónulegur sjóður félagsfólks á nafni hvers og eins félaga. Félagsfólk velur hvernig það nýtir inneign sína í sjóðnum til að greiða fyrir þjónustu eða vöru, innan þeirra marka sem félagið setur og fjallað er um í reglugerð sjóðsins.
Hér að neðan má sjá lista yfir hvað hægt er að nýta inneign í sjóðnum til að greiða, en þessi listi er ekki tæmandi.
| Atvinnuleysi | Hjartavernd | Nám, skólagjöld starfsnám |
| Börn, námsgögn | HL- stöðin | Nudd |
| Börn, tómstundir | Kírópraktor | Orlofshús VR, leiga |
| Ferðakostnaður almennt | Krabbameinsskoðun | Samtalsmeðferð |
| Ferðakostnaður, flug | Laseraðgerð | Sálfræðikostnaður |
| Ferðakostnaður, gisting | Líkamsrækt | Sjúkraþjálfun |
| Fæðingarorlof, tekjutap | Líkamsræktarvörur | Starfslok / 60+ |
| Gleraugu | Lyfjakostnaður | Tannlæknakostnaður |
| Heilsunámskeið | Lækniskostnaður | Tryggingar, líftrygging |
| Heilsustofnun | Nálarstungur | Tryggingar, sjúkdómar |
| Heyrnartæki | Nám, bókakaup | Veikindi / Örorka |
Inngreiðslur í sjóðinn
Greitt er inn í VR varasjóð árlega, eftir aðalfund sem haldinn er í mars. Inngreiðslur eru tekjutengdar og nemur árleg inngreiðsla um 4% af einum mánaðarlaunum viðkomandi félaga, að meðaltali miðað við árið á undan. Allt félagsfólk VR fær greitt í varasjóð árlega, óháð því hve lengi viðkomandi hefur verið í VR eða hver launin eru.
Inneign safnast upp milli ára
VR varasjóður byggir á uppsöfnun. Ef ekki er tekið út úr sjóðnum í einhvern tíma, hvort sem er öll fjárhæðin eða hluti hennar, er hún áfram í sjóðnum og næstu inngreiðslur bætast við það sem fyrir var. Þannig getur félagsfólk safnað upp varasjóði.
Inneign byrjar að fyrnast (25%) tveimur árum eftir að viðkomandi hættir í félaginu og fyrnist að fullu á fimm árum.
Ekkert árlegt hámark
Til að fá styrk þarf viðkomandi félagi að eiga inneign í sjóðnum. Ekkert hámark er á greiðslum úr sjóðnum, svo fremi að inneign sé til staðar.
Sækja þarf um og leggja fram reikning fyrir útlögðum kostnaði í flestum tilfellum og er reikningur endurgreiddur að fullu, ef inneign dugar til, að frádregnum tekjuskatti þar sem það á við.
Aðrir styrkir / niðurgreiðsla félagsins
Styrkir Sjúkrasjóðs VR eru sem hér segir:
- Styrkur vegna glasafrjóvgunar er alls 250.000 kr. fyrir hvern VR félaga, greitt einu sinni.
- Styrkur fyrir ferðakostnaði til að sækja sérfræðiþjónustu læknis er 150.000 kr. á hverju almanaksári fyrir hvern VR félaga.
- Fæðingarstyrkur að upphæð 100.000 kr. vegna hvers barns sem fætt er eftir 26. mars 2026. Styrkurinn nær einnig til ættleiðinga barna yngri en 18 ára.
Gjafabréf Icelandair eru sem hér segir:
- Hver VR félagi getur keypt fjögur gjafabréf á ári. Hvert gjafabréf er niðurgreitt um 6.100 kr. en verðmæti þess er 30.000 kr.
Skattskylda styrkja - mikilvægt að hafa í huga
Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Staðgreiðsla skatta er tekin af styrkupphæð úr VR varasjóði, skv. skattþrepi 1.
Þrjár undantekningar eru frá því og eru þær tilteknar hér að neðan:
- Líkamsrækt og endurhæfing sem er sambærileg og önnur íþróttaiðkun að hámarki kr. 85.000 á ári (m.v. árið 2026)
- Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 79.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
- Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.
Hverja greiðslukvittun má aðeins nota einu sinni en hún má vera allt að 2ja ára þegar sótt er um endurgreiðslu.