Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Husid 2020 Prent

Almennar fréttir - 18.03.2022

Aðalfundur VR 2022

Aðalfundur VR verður haldinn mánudaginn 28. mars 2022 kl. 19:30 á Hilton Reykjavík Nordica.
Fundurinn fer fram bæði sem stað­fundur og fjarfundur í senn. Félagar sem ætla að sækja fundinn verða að skrá sig fyrirfram fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi.

Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á fund­inn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Á dagskrá eru hefðbundin aðal­fundarstörf, reglugerðar breytingar og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð.

Skráning, dagskrá og frekari upplýsingar er að finna á vr.is/adalfundur