Almennar fréttir - 24.11.2026
Illa rökstudd framfærsluviðmið
VR tekur undir gagnrýni ASÍ og BSRB á drög dómsmálaráðherra um framfærsluskilyrði vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt. Félagið bendir á að grunnfjárhæðin í drögunum sé hærri en lágmarkslaun fyrir fullt starf samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Af því megi ráða að ríkið telji laun sem samið hafi verið um sem lágmarkskjör ekki duga til framfærslu.
VR hefur komið athugasemdum sínum við drögin á framfæri við dómsmálaráðuneytið. Félagið óskar eftir svari við því hvers vegna fjárhæðin er reiknuð sem meðaltal frítekjumarks húsnæðisbóta, örorkulífeyris með heimilisuppbót og tekjumarks skerðingar barnabóta. Þessi viðmið tengjast ekki vinnumarkaðnum og eru hvergi rökstudd, þ.e. hvers vegna þessi samsetning var valin umfram önnur viðmið. Eðlilegra væri að miða framfærsluviðmiðið við lágmarkslaun kjarasamninga. Það viðmið er gagnsætt, fylgir launaþróun og endurspeglar raunveruleika á vinnumarkaði.
VR hvetur ráðuneytið til að endurskoða viðmiðið og rökstyðja opinberlega hvers vegna ráðuneytið gerir kröfu um framfærslu yfir lágmarkslaunum.