Almennar fréttir - 09.11.2026
Yfir 4.000 klukkustundir í símenntun á einum mánuði
270 þátttakendur skráðu samtals 2.842 lærdómsverkefni í fyrsta októberátaki Ræktum vitið. ELKO, Danól og Rue de Net hlutu viðurkenningar fyrir besta árangurinn.
Alls skráðu 270 þátttakendur á 26 vinnustöðum sig í sí- og endurmenntun í október þegar fyrsta átaksverkefnið undir merkjum Ræktum vitið fór fram. Átakið er hluti af samstarfsverkefni SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) sem miðar að því að efla sí- og endurmenntun starfsfólks í verslun og þjónustu.
Í október voru fyrirtæki og starfsfólk hvött til að skrá alla starfstengda þekkingaröflun, hvort sem hún fólst í námskeiðum, lestri fræðsluefnis, hlustun á hlaðvörp, að læra á nýja tækni eða miðlun þekkingar til samstarfsfólks.
Alls stofnuðu 402 einstaklingar aðgang að átaksvefnum og 270 þeirra skráðu að minnsta kosti eitt lærdómsverkefni í október. Samtals voru skráðar 4.077 klukkustundir í sí- og endurmenntun, sem jafngildir að meðaltali um 15 klukkustundum á hvern virkan þátttakanda, eða tæplega tveimur vinnudögum.
ELKO, Danól og Rue de Net hlutu viðurkenningar
Til að hvetja til þátttöku var efnt til vinveittrar keppni milli vinnustaða í þremur stærðarflokkum. Við athöfn í Húsi atvinnulífsins föstudaginn 6. nóvember voru veittar viðurkenningar fyrir besta árangurinn.
Viðurkenningar hlutu:
- Rue de Net í flokki lítilla fyrirtækja.
- Danól í flokki meðalstórra fyrirtækja.
- ELKO í flokki stórra fyrirtækja.
Viðurkenningarnar afhentu Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, og Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR.
Sérstaka athygli vakti þátttaka starfsfólks ELKO, sem skráði um 61% allra lærdómsverkefna í átakinu.
Símenntun er meira en hefðbundið námskeið
Niðurstöður átaksins sýna hversu fjölbreyttar leiðir starfsfólk nýtir til að efla þekkingu sína. Hlustun á fræðsluefni var vinsælasta leiðin til þekkingaröflunar en einnig var mikið um lestur, áhorf á fræðsluefni og nám í nýrri tækni, þar á meðal gervigreind.
Um 85% skráninga voru á virkum dögum, sem gefur vísbendingu um að símenntun sé að einhverju leyti samþætt daglegum störfum.
„Starfsumhverfið er í stöðugri þróun og það hefur aldrei verið mikilvægara fyrir starfsfólk að hafa tækifæri til að efla þekkingu sína og hæfni. Símenntun á ekki að vera eitthvað sem fólk þarf eingöngu að sinna í frítíma sínum, heldur eðlilegur hluti af starfsþróun og vinnudeginum sjálfum. Það er ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttar leiðir þátttakendur nýttu til að læra eitthvað nýtt í þessu fyrsta átaki. Með Ræktum vitið viljum við hvetja bæði starfsfólk og atvinnurekendur til að taka sameiginlega ábyrgð á því að skapa tækifæri til símenntunar,“ segir Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR.
Góður árangur en aðeins byrjunin
Þótt fyrsta októberátakinu sé lokið heldur samstarfsverkefnið Ræktum vitið áfram. Markmiðið er að efla vitund um mikilvægi sí- og endurmenntunar og hvetja bæði starfsfólk og stjórnendur til að leggja rækt við þekkingu og hæfni í síbreytilegu starfsumhverfi.
„Við erum mjög ánægð með að þátttakendur hafi skráð yfir 4.000 klukkustundir í sí- og endurmenntun í þessu fyrsta októberátaki. Það er góður árangur og sýnir okkur að hugmyndin á fullt erindi við atvinnulífið. En við vitum líka að tækifærin eru miklu fleiri. Okkar von er að átakið vaxi og dafni á komandi árum, að enn fleiri fyrirtæki og starfsfólk taki þátt og að símenntun verði sífellt eðlilegri hluti af daglegu starfi. Við erum rétt að byrja,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu.
SVÞ, VR og LÍV þakka öllum fyrirtækjum og þátttakendum fyrir þátttökuna og óska sigurvegurunum þremur innilega til hamingju með árangurinn.
Hvert skref í símenntun telur.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á raektumvitid.is
Myndefni:
Með fréttatilkynningunni fylgir ljósmynd frá afhendingu viðurkenninganna í Húsi atvinnulífsins 6. nóvember 2026 – ljósmyndari Birgir Ísleifur Gunnarsson.