Vefspjall
Hleður upp...
Jolaskogur Frett

Almennar fréttir - 12.10.2026

Miðasala hefst á morgun - Ævintýri í Jólaskógi með VR

Miðasala á Ævintýri í Jólaskógi hefst kl. 10:00 á morgun, þriðjudaginn 13. október 2026. VR gefur félagsfólki sínu tækifæri til að upplifa ævintýraferð í Jólaskógi í aðdraganda jólahátíðarinnar í ár. Sýningin fer fram í Guðmundarlundi og standa jolasveinar.is að sýningunni.

Félagsfólk getur valið um að koma dagana 25., 26. og 27. nóvember en með því að dreifa skemmtuninni á nokkra daga gefst fleirum tækifæri til að njóta en ella.

Miðasala fer eingöngu fram á Mínum síðum á vr.is. Miðar verða seldir með afslætti og kostar miðinn einungis 500 kr. Hámarksmiðafjöldi fyrir hvern VR félaga er 6 stk.  Athugið að miðafjöldi er takmarkaður. Ekki er hægt að breyta eða skila miðum.

Sjá nánar í viðburðadagatali hér.