Almennar fréttir - 09.10.2026
VR og FA undirrita samkomulag um viðbrögð við forsendubresti
VR og Félag atvinnurekenda skrifuðu undir samkomulag um viðbrögð við forsendubresti kjarasamnings aðila í dag, 9. október 2026. Samkomulagið er samhljóða því sem VR og Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir í gær en það felur í sér nýtt forsenduákvæði kjarasamninga sem kveður á um heimild til að stytta gildistíma samninganna, miðað við ákveðið verðbólgumarkmið.