Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Kosningar2020

Almennar fréttir - 25.05.2021

Rafræn kosning um kjarasamning við Elkem Ísland hefst í dag

Kosningar um nýgerðan kjarasamning við Elkem Ísland hefjast klukkan 12:00 þriðjudaginn 25. maí og lýkur klukkan 12:00 miðvikudaginn 2. júní 2021.

Um er að ræða kjarasamning milli Elkem ísland ehf. annars vegar og Verkalýðsfélags Akraness, VR, Félag iðn-og tæknigreina og Stéttarfélags Vesturlands hins vegar.

Kosið er í rafrænni kosningu í gegnum island.is og þarf að nota rafræn skilríki til þess að kjósa en eftir innskráningu er hægt að lesa kynningu á samningnum og síðan að kjósa um hann.

Slóð á kynningu og kosning er hér.