Almennar fréttir - 15.10.2026
Vegna miðasölu á Ævintýri í Jólaskógi með VR
Í vikunni var opnuð miðasala fyrir Ævintýri í jólaskógi með VR á Mínum síðum en vegna tæknilegra vandkvæða var miðasölu hætt. Seldir miðar eru í fullu gildi.
Miðasölu verður framhaldið þriðjudaginn 20. október kl. 9:30 og verður hlekkur á miðasölu aðgengilegur á vef VR.
Athugið að þau sem hafa nú þegar keypt miða geta ekki keypt aftur.