Vefspjall
Hleður upp...
Þing2026

Almennar fréttir - 16.10.2026

47. þingi ASÍ lokið

47. þingi Alþýðusambands Íslands lauk í dag, 16. október 2026. VR átti alls 85 fulltrúa á þinginu en alls sátu það tæplega 300 fulltrúar. Eitt síðasta verk þingsins var að kjósa forystu sambandsins, forseta, varaforseta og í miðstjórn.

Georg Páll Skúlason var kosinn forseti sambandsins til næstu tveggja ára og var Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, kosin 1. varaforseti. Í sæti 2. varaforseta var tilnefnd Guðbjörg Kristmundsdóttir og Berglind Kristófersdóttir sem 3. varaforseti. Engin mótframboð bárust. Aðalfulltrúar VR og LÍV í miðstjórn ASÍ til tveggja ára eru Halla Gunnarsdóttir, Eiður Stefánsson, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Tómas Gabríel Benjamín og Júlíana Einarsdóttir. Til vara eru Bjarni Þór Sigurðsson, Selma Björk Grétarsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Birgitta Ragnarsdóttir og Paula A. Rodriquez Sanchez. 

Á þinginu voru samþykktar mikilvægar ályktanir sem varða hagsmuni launafólks, þar á meðal um efnahagslegt og félagslegt réttlæti, færni og þekkingu á breyttum vinnumarkaði og góð störf og öryggi. Þá var samþykkt ályktun þar sem stjórnendur Seðlabankans voru gagnrýndir fyrir yfirlýsingar sínar í garð launafólks og samtaka þeirra síðustu misseri.

Sjá má ályktanir þingsins á þingvef ASÍ hér.