Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_logo-2.jpg

Almennar fréttir - 02.04.2019

Greitt inn í VR varasjóð

Á aðalfundi VR, sem haldinn var 27. mars sl, var samþykkt að framlag í VR varasjóð verði samtals 806.303.461 krónur fyrir árið 2018. Af þeim voru 22.570.449 krónur vegna nýrra félagsmanna sem komu inn frá VS.

Varasjóðinn má nýta í ýmis æfingagjöld eins og í líkamsrækt, sund og golfklúbba og við kaup á hjálpartækjum tengdum líkamsrækt eins og hlaupaskóm, golfkylfum og fleiru. Þá er hægt að nýta sjóðinn í ýmsa læknistengda þjónustu eins og tannlækni, sálfræðikostnað, laseraðgerðir og fleira. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun.

Þrjár undantekningar eru á staðgreiðsluskyldum greiðslum:

  • Líkamsrækt og endurhæfing (sjúkraþjálfun, nudd, nálastungur og kírópraktor) að hámarki kr. 60.000 á ári (m.v. árið 2019)
  • Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 55.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
  • Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.

Nánari upplýsingar um varasjóðinn má sjá á vef VR hér.

Athugið að endurgreiðsla hvers félagsmanns fer eftir réttindainneign hans. Stöðu og umsóknir í VR varasjóð má finna á Mínum síðum.