Vefspjall
Hleður upp...
18. nóv.
13:30 - 15:30 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í fjarfundi á Teams
Namskeid Facebookcover Almennt

Námskeið

Námskeið fyrir félagsfólk - Þekktu þinn rétt - ENSKA

18. nóvember 2026 kl. 13:30 - 15:30 
Leiðbeinandi: Jurgita Subonyte, kjaramálasérfræðingur 

Stutt námskeið þar sem öll helstu réttindi samkvæmt kjarasamningi VR og SA eru kynnt. Á námskeiðinu er farið yfir veikindarétt, orlof, uppsagnarfrest, vinnutíma og áunnin réttindi. VR mun einnig veita almennar upplýsingar um réttindi fólks á íslenskum vinnumarkaði og kynna sjóði VR.

Þetta námskeið verður haldið á ensku. 

Námskeiðið verður haldið í  sal VR á 9.hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Einnig er hægt að taka þátt í gegnum Teams. Veldu þann möguleika sem hentar þér hér að ofan. 

Skráning: 
Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir þátttöku á staðnum og í gegnum Teams. Þátttakendur sem velja að taka þátt í gegnum Teams fá sendan tengil á fundinn áður en námskeiðið hefst. 

Við skráningu færðu áminningu á netfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Ef þú skráir þig sem þátttakanda rafrænt færðu sendan hlekk í tölvupóstinum. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á www.vr.is.