Vefspjall
Hleður upp...

Eldra félagsfólk

Ellilífeyrisþegar sem var félagsfólk VR áður en þeir hættu störfum geta fengið ýmsa fyrirgreiðslu hjá VR þó þeir séu ekki lengur á vinnumarkaði. VR býður félagsfólki á aldrinum 63-72 ára, sem er að huga að starfslokum eða er nýlega hætt að vinna á námskeið. Námskeið eru auglýst á vef VR, í VR blaðinu og í tölvupósti.

Eldra félagsfólk sem fær greiddan ellilífeyri og sem hefur verið í félaginu a.m.k. 5 ár samfellt fyrir töku eftirlauna teljast áfram félagsfólk í VR en njóta ekki kjörgengis.

Þau sem greiða samfellt til VR í 5 ár til 67 ára aldurs verða sjálfkrafa eldri félagar. Þau sem hefja töku eftirlauna fyrr geta valið að verða eldri félagar í umsóknarferlinu um eftirlaun hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Þau sem fá greitt úr öðrum lífeyrissjóðum geta haft samband við þjónustuver VR til að fá frekari upplýsingar um umsóknarferlið. 

Helstu réttindi eldri félaga eru sem hér segir:

Varasjóður

Fullgildir eldri félagar geta sótt um styrk svo fremi að þeir eigi inneign í VR varasjóði.

Sjúkrasjóður

Aðstandendur geta sótt um dánarbætur.

Réttur þessi fellur niður 24 mánuðum eftir að félagi varð eldri VR félagi, eins og það er skilgreint í 3. gr laga VR.

Orlofssjóður

Fullgildir eldri félagar geta sótt um orlofshús og einnig fengið niðurgreiðslu á orlofstengdri þjónustu eins og flugi, gistingu, leigu ferðavagna og útilegu- og veiðikorta.

Starfsmenntasjóðir

Fullgildir eldri félagar geta sótt um styrk vegna starfstengdra námskeiða og náms í 12 mánuði og árlegan tómstundastyrk í 36 mánuði eftir að hætt er að greiða félagsgjöld.

Annað

Fullgildir eldri félagar fá sent VR blaðið.

Frekari upplýsingar