Sorgarleyfi

Lög nr. 77/2022 um sorgarleyfi voru samþykkt í júní 2022. Sjá lögin hér.

Sorgarleyfi er leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við missi barns yngra en 18 ára.

Vinnumálastofnun sér um greiðslur til foreldra sem uppfylla ákvæði laganna um greiðslu. Sjá nánar á vef VMST hér.

Sorgarleyfi reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum. Ráðningarsamband helst óbreytt í sorgarleyfi og á starfsfólk rétt á að hverfa aftur til starfs síns að því loknu. Ef ekki er hægt að verða því því þá skal starfið vera sambærilegt í samræmi við ráðningarsamning.

Óheimilt er að segja foreldri sem nýtur rétt sinn til sorgarleyfis upp störfum á grundvelli þess að tilkynning um slíkt hefur borist atvinnurekanda.