8Mars2024

Almennar fréttir - 08.03.2024

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag, þann 8. mars, bjóða ASÍ, BHM, BSRB og fleiri samtök launafólks og kvenna til hádegisfundar á Hilton Reykjavík Nordica kl. 11:30-13:00. Fundinum verður einnig streymt.

Yfirskrift fundarins er „Hver ber ábyrgð? Af umönnunarbili, fæðingarorlofi og tekjutapi.“ Fundurinn fer fram á íslensku en rittúlkun verður á ensku.

Sjá nánar um fundinn, streymi og dagskrá á vefsíðu ASÍ.

Við hvetjum öll til að mæta á fundinn. Höldum umræðunni gangandi!