Vefspjall
Hleður upp...
Vr Frettamynd Copy 2

Almennar fréttir - 29.10.2026

Beislum olíuverð og lögfestum leigubremsu

VR, LÍV og Fagfélögin telja jákvætt að verðbólga hafi ekki hækkað milli mánaða og að undirliggjandi verðbólga fari lækkandi. Innflutt matvara hefur lækkað lítillega í verði sem bendir til þess að verðfrystingar sem félögin knúðu á um í tengslum við forsendubrest kjarasamninga sé nú að skila árangri. Félögin lýsa hins vegar yfir áhyggjum af þróun á verði innlendrar matvöru en bæði lambakjöt og alifuglakjöt hækkar um 3% milli mánaða, sem er gríðarleg hækkun. Verðbólga með og án húsnæðis er nú sú sama sem bendir til þess að húsnæði sé hætt að vera leiðandi þáttur í hækkun verðbólgunnar. Hins vegar er leiga enn að hækka sem hefur áhrif á vísitöluna bæði hvað varðar leigu- og eignahúsnæði. Rafmagn fer einnig hækkandi. Loks er olíuverð áhyggjuefni en heimsmarkaðsverð er nú orðið jafnhátt og það var í maí sl. þegar stjórnvöld tóku þá framsæknu ákvörðun að setja verðþak á olíu og fella tímabundið niður virðisaukaskatt. Verðbólgutölurnar sýna svart á hvítu að þá aðgerð hefði átt að framlengja. 

VR, LÍV og Fagfélögin kalla eftir eftirfarandi aðgerðum til að sporna gegn verðbólgu:

  • leigubremsa verði leiddi í lög hið fyrsta til að stöðva hækkanir á húsaleigu og draga þannig úr verðbólgu vegna húsnæðis, samhliða öðrum aðgerðum í húsnæðismálum
  • olíuverðþak verið sett á að nýju til að vernda heimilin gegn afleiddum áhrifum heimsmarkaðsverðs á olíu
  • undanþágur frá samkeppniseftirliti vegna innlendrar matvælaframleiðslu verði afnumdar og gripið til aðgerða til að stöðva gegndarlausar verðhækkanir á innlendri matvöru
  • fundnar verði leiðir til að stöðva verðhækkanir á rafmagni og hita til heimila.

VR, LÍV og Fagfélögin árétta nauðsyn þess að grípa til allra ráða til að draga úr verðbólgu sem aftur ætti að leiða til lægri stýrivaxta. Háir stýrivextir einir og sér hafa ekki dugað til að vinna bug á verðbólgu en kalla hins vegar fjárhagslegt óöryggi yfir fjölda heimila og standa hagvexti og uppbyggingu fyrir þrifum. 

Félögin munu halda áfram að fylgjast grannt með þróun verðlags og verðbólgu í von um að forsendur kjarasamninga haldi.

Reykjavík, 29.10.2026