Vr 1.Mai 2023 Prent 29

Almennar fréttir - 24.04.2024

Dagskrá 1. maí 2024

VR hvetur allt félagsfólk til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí.

Fjölskylduhlaup VR á Klambratúni
Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu hlaupi og dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Klambratúni. Söngvarinn og skemmtikrafturinn Jónsi stýrir dagskránni sem hefst kl. 11:30.

Sylvía Erla úr Bestu lögum barnanna og Íþróttaálfurinn hita upp fyrir hlaupið sem er 1,5 km leið í kringum túnið. Þátttaka er ókeypis og allir þátttakendur fá verðlaunapening.

VÆB og ANÍTA skemmta okkur og Sirkus Íslands verður á svæðinu. Boðið upp á grillaðar pylsur, bulsur, gos og safa.

Öll velkomin!

Kröfuganga og verkalýðskaffi í Reykjavík
Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13:00 en við munum ganga þangað frá Klambratúni með Jónsa og Lúðrasveit verkalýðsins í fararbroddi. Kröfugangan leggur svo af stað kl. 13:30 undir kjörorðunum Sterk hreyfing - Sterkt samfélag. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Smelltu hér til að skoða dagskrá 1. maí á öðrum félagssvæðum VR.