Kosningar 2023 (1)

Almennar fréttir - 24.01.2024

Vilt þú starfa í forystu VR?

Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.

Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi, mánudaginn 5. febrúar 2024.

Um er að ræða annars vegar sjö sæti í stjórn og þrjú til vara. Skrifleg meðmæli 15 VR félaga þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar. Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð.

Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillingarnefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 400 VR félaga sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum. Athugið að framboð til stjórnar ógildir framboð til trúnaðarráðs.

Frambjóðendum er bent á nánari upplýsingar hér, þar sem eyðublöð vegna framboða eru aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.

Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjör stjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

24. janúar 2024
Kjörstjórn VR