Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Bjarni formaður deilda í eyjum.jpg

VR blaðið - 26.06.2017

VR í Vestmannaeyjum

Sýnileiki VR mikilvægur starfseminni allri

Bjarni Daníelsson er formaður deildar VR í Vestmannaeyjum en ný stjórn var kosin á aðalfundi deildarinnar þann 23. maí síðastliðinn. Félagsmenn VR í Eyjum eru um 230 talsins og segir Bjarni ómetanlegt fyrir Eyjamenn að geta sótt þjónustu félagsins í sinni heimabyggð.

Hver eru helstu verkefni deildarinnar?

„Helsta verkefni deildarinnar er að veita félagsmönnum okkar á svæðinu þjónustu. Ásta Sigrún Gunnarsdóttir er okkar kona á skrifstofunni en auk þess að sinna þeim sem koma á skrifstofuna sér Ásta einnig um að afgreiða umsóknir um nám erlendis sem berast til Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks. Meðal verkefna deildarinnar er einnig að sækja alla mikilvæga fundi eins og aðalfund VR og vera hluti af fulltrúahópi VR á ASÍ þinginu og LÍV þinginu. Þá tökum við þátt í skipulagningu verslunarmannaballsins sem er árlegur viðburður hér í Eyjum og er alltaf hið glæsilegasta.“

Hversu mikilvæg er deildin fyrir félagsmenn?

„Það er ómetanlegt fyrir okkur Eyjamenn að hafa skrifstofuna hér í Vestmannaeyjum þar sem við höfum fengið frábæra þjónustu hjá Ástu undanfarin ár. Það að þurfa ekki að fara upp á land til að sækja þessa þjónustu er okkur gríðarlega mikils virði. Það er einnig mikilvægt að VR sé sýnilegt félagsmönnum sínum alls staðar og eflir það starfsemi VR á allan máta. Með nýrri stjórn deildar VR í Vestmannaeyjum munum við leggja aukna áherslu á að gera VR í Eyjum meira lifandi og verður spennandi að vinna að nýjum verkefnum á komandi misserum.“

VR Í Vestmannaeyjum

Skrifstofa VR í Vestmannaeyjum er til húsa að Strandvegi 54.
Skrifstofan er opin kl. 10.00 - 12.00 og 13.00 - 15.00.
Formaður deildar VR í Vestmannaeyjum er Bjarni Daníelsson.
Starfsmaður skrifstofu er Ásta Sigrún Gunnarsdóttir.
510-1700 – vr@vr.is 

Nánari umfjöllun um deild VR í Vestmannaeyjum er að finna í 2. tölublaði VR 2017 - smelltu hér til að skoða blaðið