Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 15.01.2018

Um bókanir orlofshúsa

Vegna bilunar í símkerfi varð að fresta úthlutun orlofshúsa VR 2018 um viku.

Því verður opnað fyrir bókanir árið 2018 og fram á mitt ár 2019 sem hér segir:

  • Þriðjudaginn 16. janúar 2018 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa 1. júní – 31. ágúst 2018 hjá þeim sem hafa ekki fengið úthlutað orlofshúsi sl. þrjú sumur.
  • Fimmtudaginn 18. janúar 2018 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2015, 2016 eða 2017.
  • Þriðjudaginn 23. janúar 2018 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 31. ágúst 2018 – 31 maí 2019.

Við viljum minna félagsmenn VR á að til að bóka orlofshús félagsins þarf að skrá sig inn á Mínar síður, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Skrifstofur VR verða opnar að kvöldi 16. janúar frá kl. 18:50 – 20:00 og geta félagsmenn, sem ekki bóka á vefnum, komið á skrifstofur félagsins til að bóka. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma 510 1700 frá kl. 19.00 þann sama dag.

Athugið að innskráning á Mínar síður VR frá kl. 14:00 - 23:00 þriðjudaginn 16. janúar leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.