Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Logo 2 (1)

Almennar fréttir - 20.03.2020

Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings vegna Rio Tinto á Íslandi

Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og VR hins vegar hefst 24. mars 2020 klukkan 11:00.

Rafræn atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og VR hins vegar hefst þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 11:00 og stendur til kl. 11:00 föstudaginn 27. febrúar 2020.

Hægt er að greiða atkvæði í gegnum vefsíður félaganna. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna beggja félaganna fer fram á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Hlífar að Reykjavikurvegi 64, 220 Hafnarfirði, þriðjudaginn 24. mars frá 10:00 til 13:30, miðvikudaginn 25. mars frá 10:00 til 13:30 og fimmtudaginn 26. mars frá 10:00 til 13:30. Vegna COVID-19 faraldsins eru félagsmenn þó hvattir til þess að greiða atkvæði sitt með rafrænum hætti.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel innihald samningsins og nýta atkvæðisrétt sinn. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar mánudaginn 30. mars 2020.

Smelltu hér til að greiða atkvæði.