Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Logo 2 (1)

Almennar fréttir - 27.03.2020

Atkvæðagreiðslu lokið – kjarasamningur við Rio Tinto samþykktur

Atkvæðagreiðslu um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og VR hins vegar lauk kl. 11.00 í morgun.

Samningurinn var samþykktur með 92,26% atkvæða félagsmanna VR og Hlífar. 5,81% sögðu nei og 1,94% tóku ekki afstöðu.