Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 10.12.2021

Hvert ætlar þú í sumar?

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR sumarið 2022 og fram á mitt ár 2023 sem hér segir:

Þann 5. janúar 2022 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2022 (tímabilið 3. júní til 26. ágúst).

Þann 7. janúar 2022 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2019, 2020 eða 2021.

Þann 13. janúar 2022 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 26. ágúst 2022 til 2. júní 2023.

Hægt verður að bóka orlofshús rafrænt á Mínum síðum á vr.is. Einnig verður tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700. Sökum fjölda Covid smita í samfélaginu verður ekki boðið upp á aðstoð á skrifstofum VR að þessu sinni.