Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Dagatalmynd

Almennar fréttir - 09.12.2021

Dagatal VR 2022

VR gefur út dagatal fyrir árið 2022. Dagatalið er ætlað félagsfólki VR en auk hefðbundinna rauðra daga eru merktar inn á dagatalið mikilvægar upplýsingar fyrir VR félaga, t.d. eins og hvenær opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa og hvenær aðalfundur VR verður haldinn.

Dagatölin liggja frammi á skrifstofum VR í Reykjavík, á Akranesi, Egilsstöðum, Selfossi, í Vestmannaeyjum og í Reykjanesbæ á meðan birgðir endast.