Forsidumynd Reykjavik

Almennar fréttir - 28.12.2023

Sameiginleg yfirlýsing

Samtök atvinnulífsins og breiðfylking landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum hafa tekið höndum saman um gerð langtímakjarasamninga sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu.

Samningsaðilar eru sammála um að eitt mikilvægasta verkefnið í komandi kjaraviðræðum sé að ná niður mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi sem komið hefur hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum.

Til að það markmið náist verða allir aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að leggjast á eitt og getur enginn skorast undan ábyrgð.
Samningsaðilar skora á fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að styðja við markmið kjarasamninganna um að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum, með því að halda aftur af gjaldskrár- og verðhækkunum og launaskriði.

28. desember 2023