Forsidumynd Reykjavik

Almennar fréttir - 17.01.2024

Samtök atvinnulífsins hafna nálgun Breiðfylkingar um Þjóðarsátt

Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði hóf viðræður við Samtök atvinnulífsins þann 28. desember. Á fundi þann dag kynnti Breiðfylkingin tillögur sínar um tilteknar launahækkanir í þriggja ára kjarasamningi, með ítarlegum útfærslum og rökstuðningi. Þær tillögur voru mjög hófsamar og byggðar á þekktri fyrirmynd, Lífskjarasamningunum frá 2019.

Heildarkostnaðarmat tillagna Breiðfylkingarinnar er vel innan þeirra marka sem Seðlabankinn gerir ráð fyrir í Þjóðhagsspá sinni til næstu þriggja ára. Nánast er einsdæmi að verkalýðshreyfingin hafi í upphafi kjaraviðræðna lagt fram tillögur sem eru innan þeirra marka.

Á grunni þessara tillagna skapaðist mikil jákvæðni sem báðir samningsaðilar tjáðu í fjölmiðlum. Aðilar gáfu út sameiginlega yfirlýsingu, í kjölfar fundar þar sem Breiðfylkingin kynnti tillögur sínar, þar sem þeir hvöttu til aðhalds í gjaldskrár- og verðhækkunum. Jafnframt var varað við launaskriði, en það er einsdæmi að verkalýðshreyfingin á Íslandi taki undir með atvinnurekendum í gagnrýni á launaskrið.

Síðan þá hefur farið fram tímafrek og á köflum mjög tæknileg umræða milli samningsaðila um reiknilíkön. Í þeim umræðum hafa SA smátt og smátt fjarlægt sig frá upphaflegum, jákvæðum viðbrögðum sínum. SA hafa fengið það út að tillögur Breiðfylkingarinnar séu of kostnaðarsamar og í staðinn sett fram tillögur sem eru langt neðan við þær hóflegu hækkanir sem Breiðfylkingin lagði til í upphafi viðræðna. Breiðfylkingin hefur andmælt nálgun SA með gögnum og rökum í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Í á aðra viku hefur hvorki gengið né rekið í viðræðunum vegna andstöðu SA við launatillögur Breiðfylkingarinnar.

Breiðfylkingin vill hvetja SA til að snúa af þessari braut og taka skref fram á við, ekki til baka. Mikil ábyrgð hvílir á samningsaðilum að ganga í takt að settu marki. Það markmið er heildstæð kjarasamningagerð, studd af löngu tímabærum umbótum á tilfærslukerfum hins opinbera, þar sem hóflegar krónutöluhækkanir verði forsenda lækkunar á verðbólgu og vöxtum.

Breiðfylkingin hefur fyrir sitt leyti brugðist við kalli samfélagsins um ábyrga kjarasamningagerð og býst við því sama af öðrum. Breiðfylkingin hvetur SA til að rýna betur hófstilltar tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. Sé það gert þá er leiðin til farsællar kjarasamningagerðar greið.

F.h. Breiðfylkingarinnar
Eiður Stefánsson, formaður samninganefndar Landssambands íslenzkra verzlunarmanna
Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar – sambands iðnfélaga
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands