Sumaruthlutun Kubbur Copy2

Almennar fréttir - 16.01.2024

Opið fyrir umsóknir orlofshúsa

Opnað hefur verið fyrir umsóknir orlofshúsa fyrir sumarið 2024 og verður opið fyrir umsóknir til 29. febrúar.

Ekki skiptir máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út. Félagsfólk sem fær úthlutað orlofshúsi hefur tvær vikur til að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður. Sama regla verður viðhöfð og áður að félagsfólk sem hefur fengið úthlutað orlofshúsi einhvern tímann síðustu þrjú sumur getur ekki sótt um á tímabilinu. Séu orlofshús laus eftir að úthlutun lýkur gildir reglan fyrst koma fyrst fá.

Þann 22. janúar 2024 kl. 12:00 verður opnað fyrir vetrarúthlutun orlofshúsa en þar gildir fyrst koma fyrst fá og sækir félagsfólk um á Mínum síðum.

Hér má sjá nánar um nýjar úthlutunarreglur og skilmála leigu orlofshúsa.